Winter wonderland sýning HRFÍ - dagskrá
|
|
Time to read 1 min
|
|
Time to read 1 min
Þá er komið að seinustu sýningu ársins, en hún fer fram 28. - 29. nóvember n.k. í reiðhöll Fáks í Víðidal.
Skráning á sýninguna var með besta móti, en um 1000 hundar eru skráðir til leiks og 50 ungir sýnendur. Dæmt verður í sex hringjum og hefjast dómar að venju kl. 9.
Athugið að ekki verður sérstök hvolpasýning að þessu sinni og verða hvolparnir sýndir samhliða fullorðnu hundnum.
Dómarar helgarinnar eru: Nina Karlsdotter (Svíþjóð), Patric Ragnarson (Svíþjóð), Paula Heikkinen-Lehkonen (Finnland), Pirjo Aaltonen (Finnland), Róbert Kotlár (Ungverjaland) og Sóley Halla Möller (Ísland)
Dómari fyrir keppni ungra sýnenda er Hugrún Svava Svövudóttir. Keppni ungra sýnenda fer fram föstudaginn 27. nóvember kl. 17:30. 31 ungmenni eru skráð í yngri flokki og 19 ungmenni eru skráð í eldri flokki. Keppni hefst á yngri flokki. Vegna fjölda þátttakenda hefur verið ákveðið að prófa að gefa út tímasett holl eins og nágrannalönd okkar gera. Listi yfir númer sýnenda og tímasetningu holla má sjá hér að neðan. Búið er að senda út númer ungra sýnenda, en númer hunda verða send í næstu viku. Ef einhver ungur sýnandi hefur ekki fengið sitt númer vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins.
Einnig fer fram Rallý hlýðni próf á föstudeginum en skráning í það fer fram í gegnum skrifstofu HRFÍ og lýkur skráningarfresti á miðnætti fimmtudaginn 19. nóvember.
Hér að neðan má sjá dagskrá sýningar með hefðbundnum fyrirvara um villur og breytingar. Dagskrá úrslita og PM verður birt þegar nær dregur.
| Dagskrá - Laugardagur 28. nóvember | Dagskrá - Sunnudagur 29. nóvember |
| PM dagskrá 28.- 29. nóvember | |
| Upplýsingar fyrir unga sýnendur - skipting holla |