Herdís Hallmarsdóttir kjörin í stjórn FCI Europe Section
|
|
Time to read 1 min
|
|
Time to read 1 min
Herdís Hallmarsdóttir var á mánudag kjörin í stjórn Evrópudeildar Alþjóðasamtaka hundaræktarfélaga, FCI Europe Section, á aðalfundi deildarinnar í Stokkhólmi. Kjörið er til næstu fjögurra ára.
Herdís er fyrrverandi formaður HRFÍ og hefur undanfarin ár tekið virkan þátt í norrænu samstarfi og starfi FCI, þar sem hún á nú sæti í velferðar- og heilbrigðisnefnd samtakanna.
José Miguel Doval Sanchez var kjörinn nýr formaður FCI Europe Section og Helen Tonkson var jafnframt kjörin ný í stjórn ásamt Herdísi. Mikill samhljómur var í kynningaræðum þeirra þriggja, en öll lýstu þau áhyggjum af áhrifum nýrrar Evrópulöggjafar á ræktun einstakra hundategunda og lögðu áherslu á að FCI Europe Section þyrfti að nýta styrk sinn og sérþekkingu til að tryggja ræktendum öfluga rödd við nánari útfærslu löggjafar Evrópusambandsins á þessu sviði. „Ef við sitjum ekki við borðið verða ákvarðanir um hunda teknar án þátttöku þeirra sem þekkja hunda best,“ sagði Herdís meðal annars í ávarpi sínu. Hún lagði einnig áherslu á að heilbrigði, eiginleikar og rétt tegundargerð yrðu að fara saman í ræktunarstarfi og dró áherslur sínar saman með orðunum: „Verndum það sem skiptir mestu, bætum það sem við getum og hugsum í kynslóðum“.
Jørgen Hindse lét af formennsku eftir að hafa leitt Evrópudeildina í 35 ár. HRFÍ færir honum innilegar þakkir fyrir einstakt og ómetanlegt framlag hans á þessum langa og farsæla starfsferli.
Hundaræktarfélag Íslands óskar Herdísi innilega til hamingju með kjörið og velfarnaðar í þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru.

