Breytingar á skrifstofu HRFÍ

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Breytingar verða á starfsemi skrifstofu Hundaræktarfélags Íslands.

Ágústa Pétursdóttir hefur óskað eftir að láta af starfi framkvæmdastjóra og færa sig yfir í önnur störf hjá félaginu. Í því starfi mun hún meðal annars halda utan um sýningar félagsins, aðra stærri viðburði og verkefni.

Herdís Hallmarsdóttir, fyrrum formaður HRFÍ, mun taka tímabundið við starfi framkvæmdastjóra á meðan unnið er að ráðningu nýs framkvæmdastjóra félagsins.

Silja Ösp Jóhannsdóttir hefur látið af störfum hjá HRFÍ. Félagið þakkar Silju fyrir störf hennar og samstarfið og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.

Stjórn Hundaræktarfélags Íslands