Vilt þú starfa fyrir félagið?

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Í félaginu eru ýmsar nefndir sem sinna ákveðnum hlutverkum. Eitt af fyrstu verkum nýrrar stjórnar er að skipa í fastanefndir félagsins. Allir félagsmenn geta boðið sig fram til starfa og eru eindregið hvattir til að gefa kost á sér þar sem þeir vilja hafa áhrif og vinna að framgangi mála í starfi félagsins. Vakin er athygli á því að sérstaklega er leitað eftir áhugasömum einstaklingum í ritnefnd.

​​Áhugsamir eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið stjorn@hrfi.is fyrir þriðjudaginn 7. maí n.k.