Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 27. - 28. febrúar 2010 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur föstudaginn 29. janúar 2010
Skráning á sýninguna fer fram í gegnum öruggan vefþjón hér
Að auki er hægt að senda skráningu með pósti eða faxi.
Skráningar sem berast með tölvupósti (að undanskildum ungum sýnendum) eða í gegnum síma eru ekki teknar gildar.
Greiða þarf fyrir sýninguna með greiðslukorti eða koma við á skrifstofu félagsins, ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
Keppni ungra sýnenda fer fram föstudaginn 26. febrúar.
Skráning fyrir unga sýnendur er í gegnum: hrfi@hrfi.is
Senda þarf:
Nafn þátttkanda:
Kennitölu:
Heimilisfang:
Símanúmer:
Netfang:
Greiðslukortanúmer verður að fylgja skráningu.
Mjög mikilvægt er að í "Subject" sé skráð: Ungir sýnendur - skráning á febrúarsýningu.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ sem sýna skal á haustsýningunni eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna.
Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
Dómarar að þessu sinni eru: Angle Garac Domech (Spánn), Benny Blid (Svíþjóð), Elina Tan-Hietalahti (Finnland), Espen Engh (Noregur), Ferelith Somerfield (Bretland), Zlatko Kraljic (Krótatía). Viktoría Jensdóttir dæmir unga sýnendur.
Á þessari sýningu geta hundar fengið bæði íslensk- og alþjóðleg meistarastig.
Að venju er öllum deildum félagsins boðið að vera með kynningarbása þar sem kynning fer fram á starfsemi deildanna og þeim hundategundum sem þeim tilheyra.
Sýningar félagsins eru kjörinn vettvangur fyrir fólk sem er að leita sér að hundi/hundategund að koma og sjá og hitta eigendur og ræktendur tegunda.
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í sýningaskrá geta nálgast upplýsingar hér.
Þeir sem vilja vera með sölu- og eða kynningarbás á sýningunni sjá hér.
Upplýsingar um sýningarþjálfun fyrir allar tegundir verður að finna hér.