Ársfundur Boxerdeildar HRFÍ

Ársfundur Boxerdeildar HRFÍ verður haldinn fimmtudaginn 7.Mars 2024. kl 17:30 á Brekkugötu 12 í Vogum.

 Dagskrá fundar

  1. Kosning stjórnar
  2. Ársskýrsla deildar
  3. Önnur mál

 Áhugasamir um stjórnarsæti endilega sendið á e-mail siggi@nordicprojects.is 

 Hvetjum félagsmenn til að mæta og láta sig mál hundana okkar varða.

 Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.

Hlökkum til að sjá ykkur

Með kveðju stjórn Boxerdeildar.

Back to blog